Fréttir

Cabrera Bello bætist í sterkan keppendahóp Opna írska mótsins
Rafa Cabrera Bello.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 18. júní 2019 kl. 08:00

Cabrera Bello bætist í sterkan keppendahóp Opna írska mótsins

Rafa Cabrera Bello er nýjasta Ryder stjarnan sem hefur staðfest þátttöku sína á Opna írska mótinu sem fer fram í næsta mánuði á Evrópumótaröð karla.

Þátttaka Bello, sem er í 39. sæti heimslistans, kemur svo sem ekki mikið á óvart en hann verður með í mótinu í 11. skiptið í röð.

Bello náði sínum besta árangri á Opna írska mótinu fyrir sjö árum þegar hann endaði í öðru sæti.

Í ár keppir hann við sterka kylfinga á borð við Tommy Fleetwood, Padraig Harrington, Martin Kaymer, Shane Lowry, Graeme McDowell, Thorbjørn Olesen, Louis Oosthuizen, Ian Poulter, Lee Westwood, Jon Rahm og Danny Willett sem hafa allir staðfest þátttöku sína.