Fréttir

Háskólagolfið: Vikar og Jóhannes kepptu í Arkansas
Vikar Jónasson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 23. október 2019 kl. 11:12

Háskólagolfið: Vikar og Jóhannes kepptu í Arkansas

Vikar Jónasson og Jóhannes Guðmundsson voru á meðal keppenda á Little Rock mótinu sem fór fram dagana 21.-22. október í bandaríska háskólagolfinu.

Vikar, sem leikur fyrir Southern Illinois skólann, lék hringina þrjá í mótinu alla á 76 höggum og endaði á 12 höggum yfir pari. Fyrir þann árangur endaði Vikar í 54. sæti. Lið hans endaði í 12. sæti í liðakeppninni af 15 liðum. Birgir Björn Magnússon leikur einnig fyrir Southern Illinois skólann en var ekki í liðinu í þetta skiptið.

Jóhannes lék höggi betur en Vikar í mótinu og endaði í 50. sæti í einstaklingskeppninni. Liði hans, Stephen F. Austin, gekk örlítið betur í mótinu og endaði í 9. sæti.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.