Fréttir

Heimslisti kvenna: Jin Young Ko áfram á toppnum
Jin Young Ko
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 9. desember 2019 kl. 15:58

Heimslisti kvenna: Jin Young Ko áfram á toppnum

Nýr heimslisti kvenna var birtur í dag eftir mót helgarinnar. Engar breytingar eru á efstu 20 kylfingunum en Jin Young Ko situr enn sem fastast í efsta sætinu. Hún hefur nú verið á toppnum í 32 vikur og 20 vikur samfleytt.

Esther Henseleit, sem sigraði mót helgarinnar á Evrópumótaröð kvenna, fer upp um 25 sæti og situr nú í 132. sæti listans. Valdís Þóra Jónsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á sama móti en fellur þrátt fyrir það niður um þrjú sæti milli vikna. Hún situr nú í 592. sæti listans.

Hér má sjá listann í heild sinni.