Fréttir

LPGA: Clanton og Suwannapura fögnuðu öruggum sigri
Cydney Clanton.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 20. júlí 2019 kl. 20:20

LPGA: Clanton og Suwannapura fögnuðu öruggum sigri

Fjórði og síðasti hringur Dow Great Lakes  Bay Invitational mótsins fór fram í dag og voru það þær Cydney Clanton og Jasmine Suwannapura sem stóðu uppi sem sigurvegarar eftir frábæran lokahring.

Mótið var ekki eins og önnur mót en í þessu móti léku tvær og tvær saman sem lið. Tvo hringi var leikinn fjórmenningur og hina tvo var leikinn betri bolti. Á hringnum í dag var leikinn fjórbolti og léku þær Clanton og Suwannapura á 59 höggum, eða 11 höggum undir pari. Þær enduðu sex höggum á undan næsta liði.

Í öðru sæti urðu þær Jin Young Ko og Minjee Lee á samtals 21 höggi undir pari. Þær áttu besta hring dagsins er þær komu í hús á 58 höggum.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.