Fréttir

LPGA: Henderson með sinn áttunda sigur
Brooke M. Henderson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 17. júní 2019 kl. 20:20

LPGA: Henderson með sinn áttunda sigur

Brooke M. Henderson tryggði sér í gær sinn áttunda sigur á LPGA mótaröðinni þegar hún bar sigur úr býtum á Mejir LPGA Classic mótinu. Mikil spenna var undir lokin en svo fór að lokum að hún endaði einu höggi á undan fjórum konum.

Henderson lagði grunninn að sigrinum með tveimur hringjum upp á 64 högg fyrstu tvo dagana. Þriðja daginn lék hún á 69 höggum og í gær lék hún svo á 70 höggum. Á hringnum fékk hún þrjá fugla, einn skolla og restina pör. Mótið endaði hún á 21 höggi undir pari.

Jafnar í öðru sæti á 20 höggum undir pari urðu þær Nasa Hataoka, Su Oh, Lexi Thompson og Brittany Altomare. Hataoka lék best af þeim eða á 65 höggum.

Eins og áður sagði var þetta áttundi sigur Henderson á LPGA mótaröðinni og annar sigur hennar í ár en fyrr á árinu vann hún Lotte Championship mótið. 

Lokastöðu mótsins má sjá hérna.