Fréttir

Myndband: Allt það helsta frá hringnum magnaða hjá Chappell
Kevin Chappell.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 14. september 2019 kl. 17:00

Myndband: Allt það helsta frá hringnum magnaða hjá Chappell

Kevin Chappell varð í gær 11. kylfingurinn í sögu PGA mótaraðarinnar til að spila á undir 60 höggum á PGA mótaröðinni þegar hann lék á 59 höggum á öðrum hring Greenbrier mótsins.

Chappell gerði sér einnig lítið fyrir og jafnaði met yfir flesta fugla í röð þegar hann setti niður 9. fuglinn í röð á 2. holu Old White TPC vallarins.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu tilþrif Chappell úr hringnum magnaða: