Valdís Þóra örugg áfram
Eins og greint var frá fyrr í dag lék Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, á 74 höggum á öðrum hring Magical Kenya Ladies Open mótsins.
Valdís lék fyrstu tvo hringi mótsins á samtals sex höggum yfir pari og þegar hún lauk leik í morgun var hún einu höggi frá því að komast áfram. Nú hefur staðan aftur á móti breyst og komast nú kylfingar áfram sem eru á sjö höggum yfir pari og betur.
Þar sem Valdís er á sex höggum yfir pari er orðið nokkuð öruggt að hún komist áfram. Fyrir þriðja hringinn er Valdís jöfn í 57. sæti.