Kylfingur dagsins

Drævaði í ruslatunnu og boltinn flaug fimmtíu metra afturábak
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 21. september 2025 kl. 22:43

Drævaði í ruslatunnu og boltinn flaug fimmtíu metra afturábak

Bergsveinn Bergsveinsson er einn margra keppnismanna úr öðrum íþróttum sem hefur tekið golfið föstum tökum. Beggi gerði garðinn frægan í markinu í handbolta og lék með FH, Aftureldingu og á yfir 150 leiki með landsliði Íslands, þar á meðal á Olympíuleikunum 1992. Beggi er hörku kylfingur, hefur farið holu í höggi og spilað á parinu 18 holurnar. 

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Byrjaði að fikta kringum 1990 ca. 22 ára en byrjaði ekki í golfi fyrr en eftir 2000 þegar handbolta ferillinn var búinn.

Helstu afrek í golfinu? 

Spila á parinu.

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Tók „drive“ á hælinn í ruslatunnu á teig og boltinn endaði 50 metra fyrir aftan mig var með þremur mönnum í holli sem ég þekkti ekkert.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með? 

No.10

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf? 

Nei (en var mjög hjátrúarfullur í handboltanum)

Hefurðu farið holu í höggi? 

Já á Alicante Golf, 17. holan var 165 m í pinnann og vatn hægra megin og „out of bounds“ vinstra megin, notaði 7 tré og boltinn lenti 3-5 m fyrir framan stöngina og rúllaði í.

Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik? 

Þarf að bæta járnahöggin, t.d. 5-6 járn, ekki nógu stabíll þar.

Meira um Begga kylfing:

  • Aldur: 57
  • Klúbbur: GK/GÖ
  • Forgjöf: 8,3 
  • Uppáhaldsmatur: Skirt steik ala Björg systir
  • Uppáhaldsdrykkur: Whispering Angel
  • Uppáhaldskylfingur: Ludvig Äberg
  • Þrír uppáhaldsgolfvellir: Granite Links (Boston), Finca Cortesin (Spánn), Valderrama (Spánn)
  • Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 15. í Grafarholti, 16. á Jaðarsvelli og Bergvíkin í Leiru.
  • Erfiðasta golfholan: Sextánda á Hvaleyrinni í norðanátt
  • Erfiðasta höggið: Teighöggið á 12. braut á Hvaleyrinni í hliðarvindi út á sjó
  • Ég hlusta á: Podköst, t.d. Seinni9, - Dr. Football, Þungaviktin og fleiri
  • Besta skor: Parið 72 högg - Glenview í Flórída
  • Besti kylfingurinn: Tiger - sá besti
  • Poki: Kahma
  • Dræver: Titleis TSR2
  • Brautartré: Titleist TS2
  • Járn: Titleist T300
  • Fleygjárn: Vokey
  • Pútter: Cobra
  • Hanski: Taylor Made
  • Skór: Ecco

Tiger er sá besti en Ludwig Äberg er í uppáhaldi.

Bergvíkin í Leiru er ein af uppáhaldsbrautum Begga.