Fréttir

80 ára gamall kylfusveinn snýr aftur til starfa á PGA mótaröðina eftir hjartaaðgerð
Ben Kohles leikur á PGA mótaröðinni á þessu tímabili.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
föstudaginn 17. september 2021 kl. 09:02

80 ára gamall kylfusveinn snýr aftur til starfa á PGA mótaröðina eftir hjartaaðgerð

Ben Kohles er ekki þekktasta nafnið á PGA mótaröðinni. Hann var einn af þeim sem unnu sér þátttökurétt í ár með góðri frammistöðu á síðasta tímabili á Korn Ferry mótaröðinni.

Hann er á meðal keppenda á Fortinet Championship mótinu í Kaliforníu sem markar upphaf nýs keppnistímabils. Fyrsta mót Kohles og kylfusveins hans J.J. á PGA mótaröðinni í langan tíma.

J.J. er áttræður og hefur nýlega jafnað sig eftir hjartaaðgerð. Hver sagði að fólk þyrfti að hætta að vinna þegar það kemst á eftirlaunaaldur?

Þeir félagar léku fyrsta hringinn á 74 höggum og þurfa að leika mjög vel í dag til að eiga möguleika á að komast áfram.

Skemmtilegt myndband af þeim hér að neðan.