Fréttir

Aftur lék Ólafía á 75 höggum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 14. júlí 2019 kl. 11:03

Aftur lék Ólafía á 75 höggum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er á 5 höggum yfir pari fyrir lokahringinn á Marathon Classic mótinu sem fer fram á LPGA mótaröðinni í golfi. Ólafía hefur nú leikið tvo hringi í röð á 75 höggum eftir að hafa farið vel af stað í mótinu.

Líkt og Kylfingur greindi frá á laugardaginn komst Ólafía í gegnum niðurskurðinn í mótinu og var þetta í fyrsta skiptið á tímabilinu sem hún kemst áfram á LPGA móti.

Fyrir lokahringinn er Ólafía í 77. sæti af þeim 77 kylfingum sem komust áfram en hún hefur leik klukkan sjö að staðartíma eða klukkan 11:00 að íslenskum tíma.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.