Fréttir

Ágúst Jensson nýr framkvæmdastjóri GM
Ágúst Jensson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 4. desember 2019 kl. 23:09

Ágúst Jensson nýr framkvæmdastjóri GM

Aðalfundur Golfklúbbs Mosfellsbæjar fyrir starfsárið 2018-2019 fór fram í gær, 3. desember í Kletti og var vel mætt samkvæmt heimasíðu klúbbsins.

Á fundinum var Ágúst Jensson kynntur sem nýr framkvæmdastjóri og hefur hann nú þegar hafið störf. Ágúst hefur meðal annars starfað sem yfirvallarstjóri GR, framkvæmdastjóri GA og nú síðast vallarstjóri á St. Leon-Rot golfvellinum í Þýskalandi.

Stærsta mál fundarins var endurfjármögnun golfklúbbsins en stjórn félagsins hefur unnið að endurfjármögnun klúbbsins síðustu mánuði í samvinnu við Mosfellsbæ og Landsbankann. Niðurstaða þeirra vinnu er einkum tvíþætt; í fyrsta lagi skuldbreytingar á núverandi lánum og hins vegar sala á neðri hæð íþróttamiðstöðvarinnar Kletts. Óskað var eftir heimild fundarins til að ljúka þríhliða samningi við Mosfellsbæ og Landsbanka til að styrkja rekstrargrundvöll klúbbsins og var það samþykkt samhljóða.

Samkomulagið felur í sér kaup Mosfellsbæjar á neðri hæð íþróttamiðstöðvarinnar þar sem söluverðmætið verður nýtt til niðurgreiðslu á skuldum klúbbsins. Einnig felur samkomulagið í sér að Mosfellsbær fullklárar neðri hæð Kletts. Golfklúbbur Mosfellsbæjar getur því gengið frá skuldum sínum við verktaka og byrgja og sér klúbburinn því svo sannarlega fram á bjarta tíma á komandi árum.