Fréttir

Áhorfendur hvattir til að horfa frekar á RÚV
Leikið er á Hlíðavelli í Mosfellsbæ.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 7. ágúst 2020 kl. 20:38

Áhorfendur hvattir til að horfa frekar á RÚV

Í ljósi nýjustu brýningar sóttvarnarlæknis um að almenningur fylgi tveggja metra reglunni betur eftir hvetur mótsstjórn Íslandsmótsins í golfi áhugafólk til að fylgjast með lokadögum mótsins í beinni útsendingu á RÚV, frekar en að mæta á Hlíðavöll.

Þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambandsins en sambandið sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag eftir fund sóttvarnarlæknis í hádeginu.

„Síðustu ár hafa fjölmargir áhorfendur fylgt síðustu ráshópum í mótinu og sér mótsstjórnin fram á að erfitt geti verið að framfylgja tveggja metra reglunni ef mikill mannfjöldi safnast við flatir. Sömuleiðis er minnt á að 100 gesta hámark er í íþróttamiðstöðinni á Kletti,“ kemur fram á golf.is.

RÚV var með beina útsendingu frá mótinu í dag, föstudag, og verður með útsendingu á laugardag frá klukkan 15:00-17:50 og aftur á sunnudaginn klukkan 14:00-17:30.

Tengdar fréttir:

Bjarki lék Hlíðavöll á 66 höggum og leiðir eftir tvo hringi
Ragnhildur leiðir þegar Íslandsmótið er hálfnað