Anannarukarn sigraði á Írlandi
Pajaree Anannarukarn frá Taílandi sigraði á ISPS Handa World Invitational eftir bráðabana hina bandarísku Emma Talley.
Talley og Anannarukarn léku báðar á 70 höggum í dag og enduðu einu höggi á undan Jennifer Kupcho.
Þær stöllur þurftu að leika 18. brautina tvisvar sinnum. Anannarukarn fék par í bæði skiptin á meðan Talley fékk skolla í seinna skiptið. Sigur hinnar taílensku Anannarukarn því staðreynd.