Fréttir

Andri og Axel með á Tinderbox Charity Challenge
Andri Þór Björnsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 26. júní 2019 kl. 08:00

Andri og Axel með á Tinderbox Charity Challenge

Andri Þór Björnsson, GR, og Axel Bóasson, GK, hefja í dag leik á Tinderbox Charity Challenge mótinu sem er hluti af Nordic Golf mótaröðinni. Mótið fer fram næstu þrjá daga og lýkur á föstudaginn.

Í fyrra náði Andri flottum árangri á þessu sama móti þegar hann endaði í 16. sæti. Axel var ekki meðal keppenda í fyrra.

Strákarnir fara báðir snemma af stað á fyrsta hringnum í dag en Axel byrjaði klukkan 5:12 að íslenskum tíma og Andri Þór klukkan 5:24.

Hér verður hægt að fylgjast með skori keppenda í beinni.