Annika Sörenstam sigraði með yfirburðum á Opna bandaríska
Hin sænska Annika Sörenstam sigraði með yfirburðum á Opna bandaríska eldri kvenna sem lauk í gærkvöldi. Annika lék samtals á 12 höggum undir pari. Landa hennar Liselotte Neumann kom næst 8 höggum á eftir og Laura Davies varð þriðja höggi þar á eftir.
Annika á frábæran feril að baki þar sem hún sigraði á 10 risamótum og samtals 95 sinnum á mótum atvinnumanna áður en hún lagði keppnis-kylfurnar á hilluna árið 2008 á hátindi ferilsins. Hún hefur greinilega litlu gleymt og bætir hér enn einni rósinni í hnappagatið.