Fréttir

Axel örugglega áfram
Axel Bóasson.
Fimmtudagur 13. maí 2021 kl. 21:23

Axel örugglega áfram

Atvinnukylfingurinn Axel Bóasson komst örugglega áfram þrátt fyrir að leika á þremur höggum yfir pari á öðrum hring Made in HimmerLand Qualifier mótsins en það er hluti af Nordic League mótaröðinni.

Fyrir daginn var Axel á pari vallar eftir hring upp á 72 högg í gær. Hann byrjaði daginn á 10. braut og var á höggi undir pari eftir fimm holur. Þá fékk Axel tvöfaldan skolla á 15. brautinni sem er erfið par 4 braut. Hann kom sér svo aftur á parið með fugli á fjórðu brautinni en slæmur kafli á holum fimm til átta gerði honum erfitt fyrir. Fugl á lokaholunni kom honum á þrjú högg yfir pari og endaði hann því á 75 höggum.

Eftir daginn er Axel á samtals þremur höggum yfir pari og jafn í 30. sæti. Lokadagur mótsins fer fram á morgun og hefur Axel leik klukkan 7:30 að staðartíma.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.