Fréttir

Berglind og Guðrún Brá hefja leik á morgun
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
miðvikudaginn 5. júní 2019 kl. 09:00

Berglind og Guðrún Brá hefja leik á morgun

Þær Berglind Björnsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefja á morgun leik á Viaplay Ladies Finnish Open mótinu sem er hluti af LET Access mótaröðinni.

Mótið verður leikið á Messila Golf vellinum í Finnlandi og stendur frá fimmtudegi til laugardags. 

Berglind og Guðrún léku báðar á Lavaux Ladies Championship mótinu, sem er einnig hluti af LET Access mótaröðinni, í síðustu viku. Þar komst Berglind ekki í gegnum niðurskurðinn en Guðrún náði góðum árangri og endaði jöfn í 7. sæti á einu höggi undir pari.

Hér verður hægt að fylgjast með stöðunni í mótinu.