Fréttir

Besseling sigraði á þriðja innimótinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 25. maí 2020 kl. 11:31

Besseling sigraði á þriðja innimótinu

Hollendingurinn Wil Besseling sigraði á þriðja BMW „innigolfmótinu“ þegar hann lék Golfclub München Eichenried völlinn á 4 undir pari.

Wil fékk að launum 10 þúsund dollara sem hann lét renna til tveggja góðgerðarsamtaka, annars í Hollandi sem hefur unnið mikið í Covid-19 og svo annað sem hefur stutt fólk í Afríku.

Tuttugu og fjórir atvinnukylfingar hafa tekið þátt í þessum innimótum þar sem hver kylfingur leikur heima hjá sér í TrackMan golfhermi.