Broberg náði að halda út og landaði sigrinum
Svíinn Kristoffer Broberg náði að standast áhlaup Þjóðverjans Matthias Schmidt og landa sínum fyrsta sigri frá árinu 2015.
Broberg sem ekki hefur náð að enda á meðal 10 efstu síðan 2015 virkaði stressaður á lokahringnum. Hann fékk þó fugl á fyrstu braut og hafði þá níu högga forystu. Smám saman saxaði Schmidt á þá forystu og um tíma var munurinn kominn niður í tvö högg.
Á endanum náði Broberg þó að landa þriggja högga sigri og var augljóslega mjög létt.
Schmidt sem gerðist atvinnumaður í júlí var aðeins að leika á sínu 9. móti á mótaröðinni. Frábær árangur hjá honum.