Fréttir

Choi sigraði á Pebble Beach
K.J. Choi er fyrsti Suður kóreu maðurinn til að sigra á PGA mótaröð eldri kylfinga.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
þriðjudaginn 28. september 2021 kl. 08:47

Choi sigraði á Pebble Beach

Suður Kóreu maðurinn K.J. Choi sigraði á Pure Insurance mótinu á PGA mótaröð eldri kylfinga sem fram fór á Pebble Beach og Spyglass Hill í Kaliforníu.

Þetta var fyrsti sigur Choi síðan 2011 og fyrsti sigur kylfings frá Suður Kóreu á þessari mótaröð.

Choi lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari. Næstir komu Þjóðverjarnir Bernhard Langer og Alex Cejka á 11 höggum undir pari.

Lokastaðan í mótinu