Fréttir

Daniel Gavins með frábæran sigur á ISPS Handa
David Horsey fékk skramba á síðustu brautinni og tapaði með einu höggi
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
sunnudaginn 1. ágúst 2021 kl. 17:04

Daniel Gavins með frábæran sigur á ISPS Handa

Englendingurinn Daniel Gavins vann sigur á ISPS Handa World Invitational mótinu eftir frábæran lokahring.

Jordan Smith sem leiddi fyrir lokahringinn lék á 4 höggum yfir pari í dag og féll niður í þriðja sætið á 11 höggum undir pari.

Sigurvegarinn Daniel Gavins lék á 65 höggum í dag og samtals á 13 höggum undir pari. Gavins fékk 5 fugla á hring dagsins og tapaði ekki höggi. David Horsey sem lék á 2 höggum yfir pari í dag endaði í öðru sæti einu höggi á eftir Gavins eftir að hafa fengið tvöfaldan skolla á lokaholunni. 

Lokastaðan