Daníel Ísak endaði jafn í 13. sæti
Daníel Ísak Steinarsson, afrekskylfingur úr Keili, lauk í dag leik á Opna maltneska unglingamótinu. Hann var fyrir lokahringinn í 3. sæti en náði sér ekki á strik í dag og lék hringinn á 14 höggum yfir pari. Daníel lauk því leik jafn í 13. sæti.
Leiknir voru þrír hringir í mótinu en fyrri tvo hringina lék Daníel á 74 höggum og 68 höggum. Á lokahringum fékk Daníel 7 skolla, tvo tvöfalda skolla og einn þrefaldan skolla. Hann kom því í hús á 82 höggum.
Daníel féll úr 3. sæti niður í það 13. sem er engu að síður frábær árangur en 94 keppendur tóku þátt í mótinu.