Fréttir

Slæmur endir á fyrsta hring Valdísar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 20. febrúar 2020 kl. 05:05

Slæmur endir á fyrsta hring Valdísar

Valdís Þóra Jónsdóttir GL lék á 77 höggum á fyrsta hring Australian Ladies Classic mótsins sem hófst í nótt á Evrópumótaröð kvenna.

Eftir skolla á fyrstu tveimur holum dagsins náði Valdís að rétta úr kútnum og var aftur komin á parið eftir sjö holur. Eftir 15 holur var Valdís búin að fá fjóra fugla og fjóra skolla og var því enn á pari vallar. Þá komu aftur á móti tvær mjög slæmar holur þar sem að hún fékk tvöfaldan skolla og fylgdi því eftir með þreföldum skolla.

Hún fékk par á lokaholunni og endaði hringinn á 77 höggum, eða fimm höggum yfir pari. Eins og stendur er Valdís jöfn í 137. sæti en margar eiga enn eftir að ljúka leik.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er einnig á meðal keppenda. Þegar fréttin er skrifuð hefur Guðrún lokið við níu holur og er hún á höggi undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.