Fréttir

Erfiður fyrsti hringur hjá Guðrúnu Brá
Rúnar Arnórsson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
föstudaginn 23. ágúst 2019 kl. 18:01

Erfiður fyrsti hringur hjá Guðrúnu Brá

Fyrsti hringur Tipsport Czech Ladies Open mótsins var leikinn í dag en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á meðal keppenda og reyndist fyrsti hringurinn henni erfiður.

Hún hóf daginn á fyrstu holu og fékk hún þrjá skolla og einn fugl á fyrstu níu holunum. Á þeim síðari fékk Guðrún aftur þrjá skolla en náði ekki í neinn fugl. Hún kom því í hús á 77 höggum, eða fimm höggum yfir pari.


Eftir daginn er Guðrún jöfn í 103. sæti og ljóst að hún þarf á góðum hring á morgun ætli hún sér áfram. Hún hefur leik klukkan 8:40, 6:40 að íslenskum tíma, og byrjar hún á 10. teig.

Stöðuna í mótinu má sjá hérna.