Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Evrópumótaröð karla: Grillo með góða forystu | Sharma frábær á öðrum hringnum
Emiliano Grillo. Mynd: golfsupport.nl
Föstudagur 9. mars 2018 kl. 13:37

Evrópumótaröð karla: Grillo með góða forystu | Sharma frábær á öðrum hringnum

Argentínumaðurinn Emiliano Grillo er með fjögurra högga forystu eftir tvo hringi á Opna indverska mótinu sem haldið er á Evrópumótaröð karla í golfi.

Grillo er samtals á 11 höggum undir pari eftir tvo hringi en hann lék annan hringinn á fjórum höggum undir pari og hefur einungis tapað tveimur höggum á hinum erfiða DLF golfvelli.

Ungstirnið Shubhankar Sharma lék stórglæsilegt golf á öðrum hringnum og vann sig upp um 53 högg á milli hringja. Sharma kom inn á 8 höggum undir pari og er samtals á 7 höggum undir pari í mótinu, fjórum höggum á eftir Grillo.

Spánverjinn Pablo Larrazabal og Englendingurinn Andrew Johnston deila þriðja sætinu á 6 höggum undir pari í heildina.

Ekki náðu allir kylfingar að ljúka leik á öðrum hringnum vegna veðurs. Stefnt er að því að klára annan hringinn á laugardaginn sem og þann þriðja. Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.


Sharma var í stuði á öðrum hringnum.

Ísak Jasonarson
[email protected]