Evrópumótaröð karla: Tveir Frakkar úr leik vegna Covid-19
Frakkarnir Romain Wattel og og Alex Levy taka ekki þátt í móti vikunnar á Evrópumótaröð karla, Celtic Classic, þar sem Levy greindist með Covid-19 á dögunum.
Levy hafði látið forráðamenn Evrópumótaraðarinnar vita að félagi hans hefði greinst með smit en hann persónulega hefði fengið neikvætt í prófi. Þar af leiðandi var hann tekinn í annað próf á mótsstað og kom þá í ljós að hann væri með Covid-19.
Þar sem þeir Levy og Wattel höfðu verið saman var sá síðarnefndi einnig sendur í próf. Wattel greindist hins vegar neikvæður en fær engu að síður ekki að leika í mótinu.
Í stað þeirra Wattel og Levy komust þeir Matthew Baldwin og Martin Simonsen inn í mótið sem hófst í dag.
Romain Wattel.