Fréttir

Fátt sem kom á óvart í vali landsliðsþjálfara fyrir EM liða
Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnhildur Kristinsdóttir eru bæði í landsliðum Íslands sem leika á EM.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 25. júní 2019 kl. 15:34

Fátt sem kom á óvart í vali landsliðsþjálfara fyrir EM liða

Afreksstjóri Golfsambands Íslands, Gregor Broadie, og Ólafur Björn Loftsson, aðstoðarafreksstjóri, hafa tilkynnt hvaða kylfingar skipa landslið Íslands sem taka þátt á fjórum Evrópumeistaramótum í liðakeppnum sem fram fara 9.-13. júlí næstkomandi.

Landsliðin sem um ræðir eru karla- og kvennalandslið Íslands ásamt pilta- og stúlknalandsliðum skipuðum kylfingum 18 ára og yngri.

Öll landsliðin keppa í efstu deild og fara mótin sem fyrr segir fram dagana 9.-13. júlí viðsvegar um Evrópu.

Karlalandsliðið, sem keppir í Svíþjóð, er eftirfarandi:

Aron Snær Júlíusson, GKG
Birgir Björn Magnússon, GK
Bjarki Pétursson, GKB
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Gísli Sveinbergsson, GK
Rúnar Arnórsson, GK

Kvennalandsliðið, sem keppir á Ítalíu, er eftirfarandi:

Andrea Bergsdóttir, GKG 
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS
Helga Kristín Einarsdóttir, GK
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Saga Traustadóttir, GR

Piltalandsliðið, sem keppir í Frakklandi, er eftirfarandi:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Kristófer Karl Karlsson, GM 
Kristófer Tjörvi Einarsson, GV
Jón Gunnarsson, GKG 
Sigurður Bjarki Blumenstein, GR

* Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, var valinn en gat ekki gefið kost á sér í þetta verkefni.

Stúlknalandsliðið, sem keppir á Spáni, er eftirfarandi:

Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
Árný Eik Dagsdóttir, GKG
Ásdís Valtýsdóttir, GR
Eva María Gestsdóttir, GKG
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR