Fréttir

Fisher með 18 pör á jafn mörgum holum
Oliver Fisher.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 17. ágúst 2019 kl. 16:37

Fisher með 18 pör á jafn mörgum holum

Englendingurinn Oliver Fisher er jafn í 39. sæti eftir þrjá hringi á D+D Real Czech Masters mótinu en mótið er hluti af Evrópumótaröð karla. Fisher er búinn að leika fyrst þrjá hringi mótsins á 69-72-69 höggum og er því samtals á sex höggum undir pari. 

Annar hringur mótsins hjá honum var upp á 72 högg, sem er parið á Albatross vellinum í Tékklandi. Það væri ekki frásögufærandi að ræða um þann hring fyrir utan það að á hringnum fékk hann 18 pör. Hann hefði eflaust tekið nokkra fugla fram yfir pörin því efsti maður eru nú á samtals 16 höggum undir pari.

Á fyrstu tveimur dögum mótsins tapaði hann ekki höggi, hann fékk 33 pör og þrjá fugla.