Fleetwood upp í annað sæti Race to Dubai listans
Næst síðasta mót tímabilsins, Nedbank Golf Challenge mótið, kláraðist í gær á Evrópumótaröðinni og var það Tommy Fleetwood sem stóð uppi sem sigurvegari. Fyrir sigurinn í gær hlaut Fleetwood 2,5 milljón dollara að launum sem er einn hæsti launatékki í sögu íþróttarinnar.
Fleetwood er einnig kominn í annað sæti Race to Dubai stigalistans en fyrir sigurinn var hann í 10. sæti. Hann er nú kominn með 4079,7 stig.
Bernd Wiesberger er sem fyrr í efsta sætinu en hann er rúmlega 700 stigum á undan Fleetwood. Wiesberger er með 4802,4 stig en á árinu hefur hann sigrað á þremur mótum.
Um næstu helgi ræðst hver verður stigameistari Evrópumótarðarinnar þegar DP World Tour Championship mótið fer fram í Dúbaí. Margir af bestu kylfingum heims mæta þá til leiks. Til að mynda verða Rory McIlroy Jon Rahm á meðal keppenda en þeir eiga báðir möguleika á að enda efstir á stigalistanum.
Hér að neðan má sjá stöðu efstu manna en listann í heild sinni má nálgast hérna.