Fréttir

Myndband: Fowler úr leik eftir sjaldséð mistök
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 8. ágúst 2020 kl. 09:31

Myndband: Fowler úr leik eftir sjaldséð mistök

Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler gerði sjaldséð mistök á 6. holu TPC Harding Park vallarins á öðrum keppnisdegi PGA meistaramótsins á föstudaginn.

Fowler ætlaði að klára örstutt pútt fyrir skolla en hitti varla boltann. Boltinn hreyfðist engu að síður örlítið og því taldi þessi tilraun hans sem pútt og endaði Fowler með tvöfaldan skolla á holunni.

Það sem gerir þetta atvik enn verra er sú staðreynd að Fowler endaði daginn á 2 höggum yfir pari, einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og er því úr leik í þetta skiptið.

Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.