Fyrsta stigamótið fær nafn Flugfélags Íslands
Fyrsta stigamótið á Íslensku mótaröðinni í golfi fer fram í Vestmannaeyjum helgina 29.-30. maí næstkomandi. Mótið hefur fengið nafn Flugfélags Íslands og mun bjóða sérstakt fargjald fyrir kylfinga og fylgdarlið.
Skilmálar:
-Gildir dagana 28. maí - 1. júní 2010
-Greiðist við bókun
-Breytingargjald kr. 1500 hver breyting
-Ekki endurgreitt nema veður hamli flug
-Veitir ekki vildarpunkta
Bókast hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570 3075 eða á netfangið [email protected]
Myndir: Frá Vestmannaeyjum.