Fréttir

Fyrsti sigur Frittelli á PGA mótaröðinni kom á John Deere Classic
Dylan Frittelli.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 14. júlí 2019 kl. 22:48

Fyrsti sigur Frittelli á PGA mótaröðinni kom á John Deere Classic

Dylan Frittelli sigraði á John Deere Classic mótinu sem fór fram á PGA mótaröðinni um helgina eftir frábæra spilamennsku alla fjóra dagana. Þetta var fyrsti sigur Frittelli á mótaröðinni en hann hefur tvisvar fagnað sigri á Evrópumótaröðinni.

Frittelli lék hringina fjóra í mótinu á 21 höggi undir pari en hann var á 13 höggum undir pari síðustu tvo dagana. Svo fór að lokum að hann endaði tveimur höggum á undan Russell Henley sem varð annar á 19 höggum undir pari.

Andrew Landry varð í þriðja sæti í mótinu á 18 höggum undir pari, höggi á undan þeim Collin Morikawa og Chris Stroud.

Frittelli hefur nú sigrað á öllum stærstu mótaröðum heims en auk þess að sigra á PGA- og Evrópumótaröðinni hefur hann einnig sigrað á asísku mótaröðinni.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.