Fréttir

Gísli um miðjan hóp í Noregi
Gísli Sveinbergsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 24. maí 2022 kl. 17:23

Gísli um miðjan hóp í Noregi

Þrír Íslendingar á Ecco mótaröðinni

Þrír íslenskir kylfingar leika á Moss & Rygge Open á Ecco-mótaröðinni (Nordic Golf League) í vikunni en leikið er í Noregi. Gísli Sveinbergsson úr GK, lauk leik nú fyrir skömmu. Gísli kom í hús á 74 höggum eða 2 höggum yfir pari vallarins og er sem stendur í 61.-76. sæti. Enn eiga einhverjir kylfingar eftir að ljúka leik.

Gísli fékk tvo fugla og fjóra skolla á hringnum.

Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Andri Þór Björnsson úr GR luku leik fyrr í dag. Ragnar gerði vel og kom í hús á 71 höggi eða á 1 höggi undir pari o Andri á 76 höggum eða á 4 höggum yfir pari vallarins.

Hinn danski, Magnus A. Østergaard leiðir í klúbbhúsi sem stendur á 6 höggum undir pari.

Skorkort Gísla