Fréttir

Gjaldkeri GVS fór holu í höggi á heimavellinum
Hildur Hafsteinsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 17. ágúst 2019 kl. 12:00

Gjaldkeri GVS fór holu í höggi á heimavellinum

Hildur Hafsteinsdóttir fór holu í höggi á Kálfatjarnarvelli hjá Golfklúbbs Vatnsleysustrandar á fimmtudaginn.

Hildur, sem er gjaldkeri klúbbsins, sló draumahöggið á 3. holu vallarins sem ber heitið Klöpp og er um 80 metra löng af rauðum teigum. Holan leynir þó á sér því hraun er á milli teigs og flatar og mikill kargi er fyrir aftan flöt ef kylfingar slá of langt.