Fréttir

GKG og MK hefja samstarf um golfáfanga á afrekssviði
Mynd: gkg.is
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 26. janúar 2021 kl. 08:00

GKG og MK hefja samstarf um golfáfanga á afrekssviði

Guðríður Eldey Arnardóttir, skólastjóri Menntaskólans í Kópavogi og Úlfar Jónsson, íþróttastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, skrifuðu fyrir stuttu undir samkomulag um stofnun golfáfanga á afrekssviði. Þetta kemur fram á heimasíðu GKG.

Markmið samstarfsins er meðal annars að gefa menntaskólanemendum kost á að stunda sína íþrótt samhliða námi, undir handleiðslu þjálfara og efla samstarf íþróttafélaga við námsstofnanir í sínu nærumhverfi. Góð reynsla er komin á sambærilegt samstarf en GKG og Garðaskóli hafa átt gott samstarf undanfarin 3 ár með golfáfanga.

„Það er gleðiefni sé að koma á fót samstarfi við MK, sem hefur mikinn metnað gagnvart sínum nemendum að tengja betur saman nám og íþróttaiðkun. GKG hefur það að markmiði að efla samstarf klúbbsins við skóla og aðrar stofnanir í sínu nærumhverfi, og að nýta okkar glæsilegu aðstöðu enn betur. Við teljum þörf á að veita menntaskólanemendum fleiri tækifæri til að stunda þær íþróttir sem þau hafa ánægju af, enda sé ástundun íþrótta hluti af heildrænni hæfileikamótun einstaklingsins,“ sagði Úlfar íþróttastjóri GKG og þjálfari golfáfangans.

„Það er frábært að fá GKG inn í hóp þeirra öflugu félaga sem standa að baki Afrekssviði MK. Umgjörð, þjálfun og aðstaða í klúbbnum er á heimsmælikvarða fyrir unga golfara sem vilja ná árangri. Við leggjum mikla áherslu á að styðja við efnilegt íþróttafólk hvort eð er í námi eða íþróttinni þeirra og hlökkum til árangursríks samstarfs við GKG,“ sagði fagstjóri Afrekssviðs, Daði Rafnsson.

Unglingar sem eru að huga að framhaldsnámi og hafa áhuga á að stunda sína íþrótt samhliða náminu eru hvattir til að skoða möguleikana sem MK hefur upp á að bjóða. Hér er hægt er skoða nánari upplýsingar um afrekssvið MK.