Fréttir

Guðmundur endaði í 43. sæti í Danmörku
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 8. ágúst 2020 kl. 09:42

Guðmundur endaði í 43. sæti í Danmörku

Guðmundur Ágúst Kristjánsson var á meðal keppenda á Nordic Golf mótaröðinni í vikunni þegar Thisted Forskring Championship mótið fór fram í Danmörku.

Guðmundur lék hringina tvo samtals á höggi yfir pari en hann lék fyrsta hringinn á 75 höggum og þann síðari á 69 höggum.

Besti kafli Guðmundar kom á síðari níu holum seinni hringsins þegar hann fékk einn örn og tvo fugla á þriggja holu kafla.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.

Næsta mót á Nordic Golf mótaröðinni fer fram 12.-14. ágúst. Guðmundur er þó ekki skráður til leiks en þar mun annar Íslendingur leika, Aron Bergsson.