Guðmundur í 3. sæti í Finnlandi á -20
Guðmundur Ágúst Kristjánsson varð jafn í 3. sæti á móti í Finnlandi á Áskorendamótaröðinni sem lauk í dag. Hann endaði á 20 undir pari og lék mjög gott golf alla dagana. Leikið var á Vierumäki golfsvæðinu.
Guðmundur Ágúst fékk hvorki fleiri né færri en 24 fugla og 3 erni á 72 holunum. Hann lék síðasta hringinn á sjö undir pari og skorin eru ansi falleg hjá okkar manni, 67-69-67-65, 268 högg. Guðmundur fékk 2,2 milljónir ísl. kr. fyrir árangurinn eða rúmar 16 þús. evrur.
Bjarki Pétursson lék einnig ágætt golf og endaði í jafn í 35. sæti á -10, 70-70-70-68. Bjarki fékk tíu sinnum minni upphæð eða 1600 evrur og um 220 þús. kr. ísl.