Fréttir

Guðmundur og Andri hefja leik á þriðjudaginn
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Mánudagur 24. september 2018 kl. 16:16

Guðmundur og Andri hefja leik á þriðjudaginn

Íslensku atvinnukylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson hefja leik á morgun, þriðjudag, á 1. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð karla sem fer fram á Frilford Heath vellinum í Englandi.

Hér verður hægt að fylgjast með skori keppenda í beinni.

Alls eru þrjú stig í úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröð karla þar sem á endanum 25 kylfingar öðlast þátttökurétt á þessari sterkustu mótaröð Evrópu.

Um 700 kylfingar hefja leik í ár í 1. stigs úrtökumótunum sem hófust 11. september og eru fram í október. Alls komast um 25% þeirra áfram á 2. stigið.

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn Loftsson fóru fyrstir af stað en þeir kepptu í Ebreichsdorf í Austurríki dagana 18.-21. september. Haraldur komst áfram á 2. stig úrtökumótanna en Ólafur Björn komst ekki áfram þrátt fyrir flotta spilamennsku.

Hér fyrir neðan má sjá hvenær íslensku kylfingarnir keppa:

Haraldur Franklín Magnús, 18.-21. september - Komst áfram.
Ólafur Björn Loftsson, 18.-21. september - Komst ekki áfram.
Andri Þór Björnsson, 25.-28. september.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, 25.-28. september.
Axel Bóasson, 9.-12. október.


Andri Þór Björnsson.

Ísak Jasonarson
[email protected]