Guðmundur og Haraldur báðir meðal fimm efstu
Fyrsti dagur Thisted Forsikring Championship mótsins gekk vel hjá GR-ingunum Guðmundir Ágústi Kristjánssyni og Haraldi Franklín Magnúsi en eftir daginn eru þeir báðir á meðal fimm efstu af rúmlega 100 keppendum.
Guðmundur Ágúst kom fyrr inn í dag og eins og Kylfingur greindi frá í morgun lék hann á 4 höggum undir pari. Nánar má lesa um hringinn hans með því að smella hér.
Skorkort Guðmundar.
Guðmundur er jafn í 2. sæti nú þegar allir keppendur hafa lokið leik á fyrsta keppnisdegi og er höggi á undan Haraldi Franklín sem kom inn á 3 höggum undir pari.
Haraldur er jafn tveimur kylfingum í 5. sæti mótsins. Hann fékk tvo fugla, einn skolla og einn örn á hring dagsins.
Axel Bóasson, GK, og Hákon Harðarson, GR, eru einnig með í mótinu en þeir þurfa að leika mjög vel á morgun til þess að eiga möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn. Axel lék fyrsta hringinn á 7 höggum yfir pari og Hákon á 13 höggum yfir pari.