Fréttir

Guðrún Brá átti erfiðan fyrsta hring á ISPS Handa
Guðrún Brá leikur á ISPS Handa World Invitational
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
föstudaginn 30. júlí 2021 kl. 10:39

Guðrún Brá átti erfiðan fyrsta hring á ISPS Handa

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á 77 höggum á fyrsta hring stórmótsins ISPS Handa World Invitational.

Guðrún lék að mestu fínt golf á hringnum en 7. og 8. brautir Calgorm Castle vallarins reyndust okkar konu erfiðar en hún lék þær á samtals 5 höggum yfir pari.

Guðrún Brá situr í 106. sæti mótsins eftir fyrsta hring. Eins og staðan er núna komast þeir kylfingar áfram sem leikið hafa á pari eða betur en það gæti þó átt eftir að breytast eftir því sem líður á daginn.

Staðan í mótinu