Guðrún Brá úr leik á Írlandi
Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék á 75 höggum á öðrum hring ISPS Handa World Invitational mótinu á Írlandi.
Guðrún lék fyrsta hringinn á 77 höggum og endaði mótið á 7 höggum yfir pari og kemst ekki í gegnum niðurskurðinn sem miðaðist við þá kylfinga sem léku á pari eða betur.
Emma Talley frá Bandaríkjunum er efst á 13 höggum undir pari og hefur þriggja högga forystu á næstu konur.