Fréttir

Guinness-inn flaut á kránni með Lowry syngjandi
Þriðjudagur 23. júlí 2019 kl. 15:13

Guinness-inn flaut á kránni með Lowry syngjandi

Nýi Opni meistarinn, Írinn Shane Lowry var ekki lengi að svara spurningu fréttamanna þegar þeir spurðu hann eftir sigurinn á OPNA mótinu, hvort hann myndi ekki fagna um kvöldið? „Nei, ekki bara í kvöld heldur alla vikuna,“ sagði Írinn brosandi.

Að sið heimamanna hófst fjörið fljótlega eftir sigurinn og viðtölin eins og sjá má í myndskeiði sem Sam Torrance, fyrrum fyrirliði Ryder-liðs Evrópu en nú sjónvarpsmaður, póstaði á samfélagsmiðlinum Twitter. Guinnessinn flaut í glösum sem og aðrir drykkir sem runnu niður eins og enginn væri morgundagurinn. Opni meistarin tók lagið með hljómsveit hússins. Írsk stemmning eins og hún gerist best.