Fréttir

Happy Gilmore mættur á grínin
Þriðjudagur 31. janúar 2023 kl. 22:44

Happy Gilmore mættur á grínin

Hver man ekki eftir hinni frábæru bíómynd um Happy Gilmore, sem Adam Sandler túlkaði svo eftirminnilega hér um árið. Fyrir utan að vera högglangur með eindæmum þá púttaði Happy með íshokkíkylfu. Hver hefði trúað því þá að einn heitasti golfbúnaðurinn á komandi ári tengdist einmitt þessu, en það er íshokkískaft á venjulegan púttershaus. Hugmyndin er alls ekki vitlaus og hún rúmast vel innan golfreglnanna. 

Eva Rogers margverðlaunaður PGA golfkennari, sem Golf Digest valdi besta unga golfkennarann í Bandaríkjunum sýnir hér hvernig kylfingar geta nýtt sér fjölbreytileika Caliber Golf púttgripsins.