Fréttir

Haraldur Franklín á þriðja hring í Skotlandi
Haraldur Franklín Magnús
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
laugardaginn 28. maí 2022 kl. 06:55

Haraldur Franklín á þriðja hring í Skotlandi

Haraldur Franklín Magnús úr GR leikur þriðja hringinn á Farmfoods Scottish Challenge í dag. Haraldur Franklín er á 1 höggi yfir pari eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Eftir að hafa verið í toppbaráttu fyrstu 27 holurnar fataðist honum flugið á seinni níu holunum í gær og hann rétt komst í gegnum niðurskurðinn.

Hann verður ræstur út á þriðja hringinn rétt upp úr klukkan átta að morgni laugardags.

Heimamaðurinn Lee Craig læddi sér upp að hlið Englendingsins, Nathan Kimsey á öðrum hring en þeir leiða mótið á 7 höggum undir pari.

Staðan á mótinu