Fréttir

Háskólagolfið: Hlynur og North Texas í efsta sæti
Hlynur Bergsson. Mynd: golfsupport.nl.
Sunnudagur 7. október 2018 kl. 11:30

Háskólagolfið: Hlynur og North Texas í efsta sæti

Hlynur Bergsson, GKG, og liðsfélagar hans í University of North Texas eru í forystu eftir fyrsta daginn á Maridoe Intercollegiate mótinu sem fram fer á Mardioe golfvellinum í Texas.

Hlynur lék sjálfur þremur höggum yfir pari og er í 15. sæti í einstaklingskeppninni. Skorkortið hans má sjá hér fyrir neðan.


Skorkort Hlyns.

University of North Texas er samtals á 6 höggum yfir pari í þessu sterka móti, höggi á undan SMU skólanum sem er í öðru sæti.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.

Ísak Jasonarson
[email protected]