Fréttir

Háskólagolfið: Lið Björns endaði í 4. sæti á The All American
Björn Óskar Guðjónsson. Mynd: [email protected]
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 18. febrúar 2020 kl. 22:51

Háskólagolfið: Lið Björns endaði í 4. sæti á The All American

Björn Óskar Guðjónsson GM og liðsfélagar hans í Louisiana Lafayette kepptu dagana 16.-18. febrúar á The All American mótinu sem var haldið í Texas. Mótið var hluti af bandaríska háskólagolfinu þar sem Björn hefur spilað undanfarin ár.

Björn lék fínt golf í mótinu og endaði á 6 höggum yfir pari í heildina sem skilaði hounm um miðjan hóp í einstaklingskeppninni en hann varð í 45. sæti af 81 keppenda.


Skorkort Björns á lokahringnum.

Lið Björns, Louisiana Lafayette, endaði í 4. sæti í liðakeppninni á 2 höggum undir pari. Sam Houston State skólinn fagnaði sigri á frábæru skori, 24 höggum undir pari.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.

Næsta mót hjá Birni fer fram dagana 16.-17. mars.