Fréttir

Heimslisti kvenna: Henderson ekki ofar í tæp þrjú ár
Brooke M. Henderson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 17. júní 2019 kl. 22:00

Heimslisti kvenna: Henderson ekki ofar í tæp þrjú ár

Heimslisti kvenna hefur nú verið uppfærður eftir mót helgarinnar og er það Jin-Young Ko sem er í efsta sætinu líkt og undanfarnar vikur. Lexi Thompson er komin upp í annað sætið eftir gott gengi undanfarnar vikur. Heldur hún uppteknum hætti gæti hún náð efsta sætinu innan skamms og yrði það í fyrsta skiptið sem hún næði þeim áfanga.

Sigurvegari helgarinnar, Brooke M. Henderson, var að vinna sitt annað mót á árinu og er hún nú komin í fimmta sæti listans.

Henderson hefur ekki verið jafn ofarlega á listanum í tæp þrjú ár, eða síðan síðla árs 2016 en það sama ár komst hún í annað sæti listans eftir að hafa fagnað sigri á PGA meistaramóti kvenna, sem er eitt af risamótunum fimm.

Listann í heild sinni má sjá hérna.