Fréttir

Heimslisti kvenna: Lee6 komin inn á topp 10
Jeongeun Lee6.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 3. júní 2019 kl. 22:35

Heimslisti kvenna: Lee6 komin inn á topp 10

Nýr heimslisti kvenna var birtur í dag og eru nokkrar breytingar á efstu 10 kylfingunum. Tvær konur koma nýjar inn á topp 10 listann, þær Jeongeun Lee6 og So Yeon Ryu.

Lee6 sigraði Opna bandaríska mótið um helgina og fer upp um 12 sæti á nýjum heimslista. Hún situr því í 5. sæti listans og hefur þessi 23 ára kylfingur aldrei verið ofar á listanum.

Jin-Young Ko situr enn í efsta sætinu en þetta er önnur vikan í röð þar sem hún vermir toppsætið. 

Lexi Thompson fer upp um fjögur sæti eftir að hafa endað jöfn í 2. sæti á Opna bandaríska mótinu um helgina. Hún er því komin í 4. sæti heimslistans.

Hér má sjá listann í heild sinni.