Fréttir

Heitustu járnasettin 2023
Þriðjudagur 31. janúar 2023 kl. 22:12

Heitustu járnasettin 2023

Nú er sá tími ársins að nýjar týpur af golfkylfum taka að streyma inn í golfverslanir. Það er alltaf gaman að fá sér nýjar græjur. Hvað er betra til að bæta skorið á komandi golfsumri en glænýtt járnasett, sem skefur nokkur högg af forgjöfinni. Huga þarf að ýmsu þegar kemur að kaupum á járnasettum, en kylfingnum þarf að líða vel með settið sem hann velur og ekki er verra ef það fyllir hann nauðsynlegu sjálfstrausti til að skora betur á vellinum. Segja má að járnasettið sé ein stærsta búnaðarfjárfestingin, en venjulegur kylfingur þarf á bilinu 5 til 7 stk af slíkum kylfum í pokann og algengt verð á kylfu er á bilinu 22 - 35 þúsund fyrir stykkið.

Í meðfylgjandi myndbandi prófar James Robinson ásamt Mark miðlungsspilara nýjustu járnin frá PING sem heita G430.