Fréttir

Hero World Challenge mótið hefst í dag
Sigurvegari síðasta árs, Jon Rahm
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
miðvikudaginn 4. desember 2019 kl. 11:28

Hero World Challenge mótið hefst í dag

Hero World Challenge mótið, sem er í boði Tiger Woods, hefst í dag. Mótið fer fram á hjá Albany golfklúbbnum á Bahama eyjum og eru 18 keppendur mættir til leiks. 

Flestir af bestu kylfingum heims taka þátt í mótinu, svo sem Justin Thomas, Patrick Cantlay, Justin Rose og að sjáfsögðu gestgjafinn sjálfur, Tiger Woods. Sigurvegari síðustu tveggja ára, þeir Jon Rahm og Rickie Fowler eru einnig mættir til leiks.

Fyrstu holl fara út klukkan 10:40 að staðartíma, eða klukkan 15:40 á íslenskum tíma.

Hér má fylgjast með skori keppenda.

Hér má svo fylgjast nánar með hring Tiger Woods.